Stjórn og skipulag

Kaupfélag Borgfirðinga er samvinnufélag og starfar samkvæmt  lögum um þau. Félagið er deildarskipt og miðast félagssvæðið við Vesturland, frá Hvalfjarðarbotni í suðri að Kjálkafirði  í vestri.

Deildir félagsins eru 16 og í árslok 2021 voru félagsmenn 1.866. Þeir kjósa sér 67 fulltrúa á aðalfund. Öllum félagsmönnum er heimilt að mæta á aðalfund með málfrelsi og tillögurétt, en aðeins kjörnir fulltrúar hafa atkvæðisrétt. Stjórn félagsins skipa 5 menn og fara þeir með æðsta vald í félaginu á milli aðalfunda.

Samþykktir félagsins gilda um starfsemi þess.  Þær er hægt að sækja og skoða með því að smella á þessa skrá:  Samþykktir Kaupfélags Borgfirðinga

Á aðalfundi 18. apríl 2023 voru eftirtaldir kjörnir í stjórn:

  • Sigrún Halla Gísladóttir, Borgarnesi, formaður
  • Hjalti R. Benediktsson, Borgarnesi, varaformaður
  • Eggert Kjartansson, Hofsstöðum, ritari
  • Garðar Freyr Vilhjálmsson, Búðardal, meðstjórnandi
  • Dagný Sigurðardóttir, Innri-Skeljabrekku, meðstjórnandi
  • Varamenn í stjórn eru:
  • Kristján Jóhannes Pétursson, Borgarnesi
  • Sigríður Helga Skúladóttir, Borgarnesi
  • Einar Ole Pedersen, Álftártungukoti
  • Kaupfélagsstjóri er Margrét Katrín Guðnadóttir